ID: 8566
Einstætt foreldri
Fæðingarár : 1857
Fæðingarstaður : Gullbringusýsla
Dánarár : 1919
Málfríður Sigurðardóttir fæddist 13. maí, 1857 í Reykjavík. Dáin í Manitoba árið 1919.
Maki: Einar Sveinsson f. í Árnessýslu 13. september, 1855, d. á Gimli 28. febrúar, 1932
Börn: 1. Sigurður f. 1878 2. Halldóra f. 1882 3. Sigurey f. 1883 4. Guðrún f. 1887 5. Lilja f. 1888 6. Septína f. 1892 7. Sveinn f. 1899 8. Björg f. 1900. Halldóra og Guðrún fóru ekki vestur með foreldrum sínum.
Einar og Sigurður fóru saman vestur árið 1903, Málfríður fór á eftir þeim með hin börnin fimm. Þau fóru til Manitoba og bjuggu á Gimli.
