ID: 8576
Fæðingarár : 1883
Sigurbjörg Friðbjarnardóttir fæddist á Akureyri í Eyjafjarðarsýslu 2. september, 1883.
Maki: 13. nóvember, 1926 Hermann Björnsson fæddist í Argylebyggð í Manitoba 8. maí, 1892. Dáinn í Blaine, Washington 18. nóvember, 1958.
Sigurbjörg flutti vestur árið 1905 og settist að í Winnipeg. Þar kynntist hún Hermanni og bjuggu þau í borginni til ársins 1930. Þaðan lá þá leið þeirra til Chicago og voru þau þar til ársins 1953. Fóru svo þaðan til Blaine í Washington. Hermann var sonur Björns Björnssonar og Guðnýjar Vilhelmínu Einarsdóttur sem fóru vestur árið 1883 og námu land í Argylebyggð í Manitoba. Þar hét Grashóll. Hermann var starfsmaður í verksmiðjum sem unnu að framleiðslu iðnaðarvara.
