Anna Jónsdóttir fæddist árið 1875 í Gullbringusýslu. Dáin í Yellow Medicine sýslu í Minnesota 30. ágúst, 1924 .
Maki: 27. október, 1907 í Winnipeg Óli Sigfinnsson f. 27. apríl, 1863 í N. Múlasýslu, d. 20.janúar, 1928.
Börn: Með fyrri manni 1. Mabel f. 1899 2. Laura f. 1902 1. Sigfinnur Halldór f. 17.febrúar, 1910. Dáinn 29.ágúst, 1911 2. Jósef Sigfinnur f. 1912 3. Kristín (Christine) Lilja f. 1915. Dáin 18.júlí, 1946.
Anna fór vestur með móður sinni, Vilborgu Árnadóttur árið 1885. Þær fóru til Winnipeg þar sem Anna seinna giftist. Anna og dæturnar voru Johnson. Óli fór vestur með föður sínum, Sigfinni Péturssyni og konu hans, Sigurbjörgu Sigurðardóttur, árið 1878 og settist að í Lincolnbyggð í Minnesota. Óli og Anna gengu í hjónaband í Winnipeg 27. október 1907. Þau bjuggu fyrst í Lincoln sýslu en fluttu seinna í Lyon sýslu.
