Marinó Hrappsted

ID: 20480
Fædd(ur) vestra
Fæðingarár : 1915

Marinó Hrappsted Mynd VÍÆ II

Marinó Hrappsted fæddist í Leslie í Saskatchewan 17. júlí 1915.

Maki: 4. desember, 1944 Josephina Björnsdóttir f. 1. ágúst, 1921 í Foam Lake, Saskatchewan.

Börn: 1. Kenneth f. 28. desember, 1945 2. Richard Wayne f. 9. maí, 1950.

Marinó var sonur Einars Sigurðar Jóhannessonar Hrappsted og Ólínu Martha Sveinsdóttur í Foam Lake. Marinó lauk miðskólanámi í Vatnabyggð og hóf búskap nærri Leslie. Foreldrar Josephina voru Björn Gíslason Johnson í Foam Lake og Anna Sigurðardóttir.