Stefán Nikulásson

ID: 8605
Fæðingarár : 1871
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla
Dánarár : 1926

Stefán, Una, Sigþrúður og Lára. Myndin tekin á Akureyri. RbQ

Stefán Nikulásson fæddist í N. Múlasýslu 14. september, 1871. Dáinn í Vatnabyggð í Saskatchewan 25. mars, 1926.

Maki: 8. október, 1891 Una Kristín Hálfdánardóttir f. í N. Múlasýslu 1867. d. í Vatnabyggð árið 1936.

Börn: 1. Sigþrúður f. 1893, fór ekki vestur 2. Lára f. 1896 3. Albert f. 7. apríl, 1901, d. 1986 4. Dagmar Margrét Aðalheiður f. 15. desember, 1906.

Þau fluttu vestur til Minnesota árið 1913 og bjuggu fimm ár í Minneota. Fluttu þá norður í Vatnabyggð og bjuggu á sínu landi skammt frá Wynyard.