Magnús Stefánsson

ID: 8659
Fæðingarár : 1853
Fæðingarstaður : N.Þingeyjarsýsla

Magnús Stefánsson fæddist í N. Þingeyjarsýslu 1. desember, 1853.

Maki: 1) 21. nóvember, 1879 Valgerður Jónsdóttir Bergmann f. í Eyjafjarðarsýslu árið 1859, d. 1883. 2) Ólöf Sumarrós Sigfúsdóttir f. 1867.

Börn: Með Valgerði 1. Friðrik 2. Amy. Með Ólöfu 1. Jón 2. Magnús Valgarð 3. Elías 4. Elín.

Magnús fór vestur til Ontario í Kanada árið 1873 og fór fyrst í Rosseaubyggð. Var þar í eitt ár og fór þaðan til Milwaukee í Wisconsin. Þaðan lá svo leiðin til Nýja Íslands þar sem hann dvaldi um hríð. Hann fór í fyrstu landkönnunarferðina til N. Dakota og nam fyrst land í Akrabyggð. Hann flutti seinna sunnar í byggðina. Árið 1914 flutti hann til Climax í Saskatchewan.