Pétur H Thorlacius

ID: 8690
Fæðingarár : 1825
Fæðingarstaður : Eyjafjarðarsýsla
Dánarár : 1874

Pétur Hallgrímsson Thorlacius fæddist 15. mars, 1825 í Eyjafjarðarsýslu. Dáinn í Wisconsin árið 1874.

Maki: Kristín Ólafsdóttir f. 1831 í Eyjafjarðarsýslu.

Börn: 1. Ingibjörg f. 19. júlí, 1954 2. Hallgrímur f. 28. mars, 1958.

Pétur og Kristín fóru vestur til Milwaukee í Wisconsin árið 1873 með Ingibjörgu, Hallgrím 10 ára frænda Péturs og Kristgerði Kristinsdóttur ársgamla en hún var frænka Kristínar, dóttir Kristins og hans konu Katrínar Ólafsdóttur. Þau settust að í Stanton í Wisconsin og þar lést Pétur. Ekkjan, Kristín fylgdi bróður sínum , Kristni, vestur til Minnesota og N. Dakota.