ID: 8710
Fæðingarár : 1881
Dánarár : 1956

Helga og Guðmundur Mynd WtW
Helga Sigríður Jónasdóttir fæddist 31. janúar, 1881 í Eyjafjarðarsýslu. Dáin 25. desember, 1956 í Lundar.
Maki: 1) Jóhannes Magnússon f. 1855 í Skagafjarðarsýslu, d. 26. mars, 1910 í Manitoba. 2) 28. september, 1911 Guðmundur Jónas Bjarnason f. 7. apríl, 1876, d. 15. apríl, 1956 í Lundar.
Börn: Með Jóhannesi 1. Hermína f. 5. október, 1909. Með Guðmundi 1. Guðmundur Fjölnir f. 24. janúar, 1915. Upplýsingar um fleiri börn Helgu og Guðmundar vantar.
Guðmundur var sonur Bjarna Guðmundssonar og Ólafar Sigurðardóttur sem vestur fluttu til Manitoba árið 1889, Guðmundur var bóndi og fiskimaður í Vogum við Manitobavatn. Helga og Jóhannes fluttu til Vesturheims árið 1903 og settust að í Winnipeg.
