Kristján N Jónsson

ID: 8836
Fæðingarár : 1859
Fæðingarstaður : Eyjafjarðarsýsla
Dánarár : 1936

Kristján Níels Jónsson, ,,KÁINN“. Mynd ,,Fæddur til að fækka tárum“

Kristján Níels Jónsson fæddist 7. apríl, 1859 á Akureyri í Eyjafjarðarsýslu. Dáinn í Eyfordbyggð í N. Dakota 25. október, 1936. Káinn vestra.

Ókvæntur og barnlaus.

Kristján flutti vestur árið 1878 og kom sér fyrir í Winnipeg í Manitoba. Þar kynntist hann ýmsum hliðum fjölþjóðamenningu, í kanadísku dagblaði var fullyrt að á götum Winnipegborgar hefði mátt heyra mælt á amk 17 tungumálum.  Hann fékk vinnu hér og hvar, vann nánast allt sem bauðst en festi þar ekki rætur. Hann yfirgefur borgina seint á níunda áratug 19. aldar og fer til Duluth í Minnesota. Þar tekur á móti honum ósköp lík borg og Winnipeg, þar fóru um innflytjendur frá Evrópu sem ferðuðust eftir vötnunum miklu í Bandaríkjunum á leið vestur en um 1890 var vestrið í Bandaríkjunum að opnast. Vinna í borginni var árstíðabundin, líkt og í Winnipeg, nóg að gera á sumrin, minna eða nánast ekkert á veturna. Svo fór að Kristján ákvað að heimsækja landa sína sem sestir voru að á sléttunni í N. Dakota, hann flytur þangað árið 1893 og þar festi hann rætur. Frekari lesning í stórgóðri bók Jóns Hjaltasonar, Fæddur til að fækka tárum“ og frábær tónlist Baggalúts við valin ljóð á Sólskinið í Dakota.