
Sesselja Friðfinnsdóttir Mynd VÍÆ IV
Sesselja Friðfinnsdóttir fæddist 30. júní, 1851 í S. Þingeyjarsýslu. Dáin í Selkirk í Manitoba árið 1920
Maki: 7. júlí, 1874 Sigurgeir Stefánsson f. í Eyjafjarðarsýslu 28. júlí, 1950 d. í Manitoba 27. apríl, 1927.
Börn: 1. Þóra Kristín f. 23. febrúar, 1876, d. 3. nóvember 1876 2. Iðunn f. 3. júlí, 1879, d. 27. febrúar, 1882 3. Ragnar f. 1. september, 1881, d. sama ár. 4. Nora Emily f. 31. október, 1884 í Winnipeg 5. Sigurgeir eignaðist son fyrir hjónaband. Gestur f. 29. ágúst, 1873. Móðir hans hét Guðrún Jónsdóttir frá S. Þingeyjarsýslu. Gestur Stephansson vestra.
Þau fluttu vestur árið 1882 með Ragnar litla tæplega ársgamlan. Hann dó áður en þau komust á leiðarenda í Manitoba. Þar settust þau að í Selkirk og bjuggu þar í tvö ár. Þaðan lá leið þeirra til Winnipeg, dvöldu þar einhver ár en fluttu svo aftur til Selkirk. Þar bjuggu þau síðan og vann Sigurgeir við trésmíði.
