Þorsteinn Indriðason

ID: 8879
Fæðingarár : 1873
Fæðingarstaður : Eyjafjarðarsýsla
Dánarár : 1852

Þorsteinn á landi sínu um 1920 Mynd RbQ

Þorsteinn Indriðason fæddist í Eyjafjarðarsýslu árið 1873. Dáinn í Coquitlam í Bresku Kólumbíu 14. febrúar, 1852. Thorstein (Stone) Indridason vestra.

Maki: Þorbjörg Sveinsdóttir f. 8. júlí, 1875 í Skagafjarðarsýslu, d. 1973 í Vancouver.

Börn: 1. Sveinn f. 8. júlí, 1898, d. 2. september, 1979 2. Þorsteinn f. 11. nóvember, 1901.

Þorsteinn flutti vestur til Kanada árið 1876 með foreldrum sínum, Indriða Sigurðssyni og Sigurbjörgu Kristjánsdóttur og systkinum árið 1876. Þorbjörg var dóttir Sveins Sölvasonar og Moniku Jónsdóttur sem vestur fluttu árið 1887. Þorsteinn og Þorbjörg hófu búskap nálægt Mountain í N. Dakota en fluttu þaðan seinna norður í Vatnabyggð í Saskatchewan. Þaðan fóru þau vestur að Kyrrahafi og bjuggu í Vancouver.