
Daníel Grímsson Laxdal Mynd SÍND
Daníel Grímsson Laxdal fæddist í Eyjafjarðarsýslu 9. apríl, 1866. Dáinn í N. Dakota 20. mars, 1914 í Cavalier.
Maki: 7. október, 1893 Bessie Rose f. 1875 af írskum ættum.
Börn: 1. Mabel M f. 1895 2. Frederick A. f. 1. desember, 1896 3. Mildred f. 1901 4. Aldís C. f. 1903.
Daníel fór vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1876 með móður sinni, Aldísi Jónasdóttur og systur sinni Hlaðgerði. Þau voru börn Gríms Laxdals á Akureyri. Þau settust að í Nýja Íslandi en fluttu þaðan í Garðarbyggð í N. Dakota árið 1880. Daníel var efnilegt barn og duglegur unglingur. Áreiðanlegt að móðir hans var vakandi yfir framtíðarmöguleikum og áttaði sig á að góð enskukunnátta væri lykillinn að norðuramerísku samfélagi. Hann var svo lánsamur að fá undirbúningsfræðslu hjá frænda sínum, séra Friðriki Bergmann sem hvatti hann til framhaldsnáms. Hann lauk laganámi frá Decorah í Iowa og starfaði sem lögfræðingur í Cavalier í N. Dakota.
