Friðbjörn Stefánsson

ID: 8885
Fæðingarár : 1833
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla

Friðbjörn Stefánsson fæddist í Bakkagerði í N. Múlasýslu árið 1833.

Maki: 1) Guðný Daníelsdóttir f. 1824 í N. Múlasýslu. Upplýsingar vantar um dánarár hennar. 2) Guðrún Kristjánsdóttir f. 3. október, 1829, d. 15. október, 1913, þá ekkja.

Börn: Friðbjörn átti Stefán, fæddan árið 1853 og bjó í Bakkagerði með hann tveggja ára árið 1855.

Þau fóru vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1876 og settust að í Nýja Íslandi. Vesturíslensk heimild segir Friðbjörn hafa verið einbúa í Mikley og að Stefán hafi farið vestur að Kyrrahafi. Ekkert minnst á Guðnýju. Guðrún var þeim samferða vestur til Nýja Íslands.