Friðbjörn Jóhannsson

ID: 8984
Fæðingarár : 1866
Fæðingarstaður : S. Þingeyjarsýsla

Friðbjörn Jóhannsson fæddist í S. Þingeyjarsýslu árið 1866.

Maki: Guðrún Erlendína Sigurðardóttir f. 23. apríl, 1878, d. í Manitoba 19. febrúar, 1913.

Börn:  1. Jóhann.

Friðbjörn fór vestur árið 1878 með foreldrum sínum, Jóhanni Sigurðssyni og Jóhönnu Jónatansdóttur og systkinum. Þau settust að í Manitoba. Guðrún fór vestur árið 1887 með sínum foreldrum, Sigurði Erlendssyni og Hólmfríði Steindórsdóttur. Friðbjörn og Guðrún námu land í Big Grass byggð, nálægt Ísafoldar- Pósthúsi en þessi litla sveit var vestur af Langruth í Manitoba.