Jóhanna Jóhannesdóttir

ID: 9019
Fæðingarár : 1864
Fæðingarstaður : S. Þingeyjarsýsla
Dánarár : 1956

Jóhanna Jóhannesdóttir fæddist 31. maí, 1864 í S. Þingeyjarsýslu. Dáin í Kaliforníu árið 1956.

Maki: 1886 Jóhannes Frímann Magnússon f. 29. ágúst, 1859 í S. Þingeyjarsýslu, d. í Wynyard í Saskatchewan 15. ágúst, 1930. Melsted vestra.

Börn: 1. Valdimar f. 20. febrúar, 1887 2. Elín f. 4. október, 1888 3. Emilía f. 20. apríl, 1890, d. 28. desember, 1923 í Wynyard 4. Leó f. 29. febrúar, 1892 d. sama ár 5. Rose d. í fæðingu 6. Laufey f. 23. maí, 1896 7. Óskar f. 8. febrúar, 1898 8. Bertel f. 15. mars, 1900, d. í maí, 1907 9. Leó Roosevelt f. 28. janúar, 1902 10. Valgerður f. 9. júlí, 1903 11. Elmar (Elmer) f. 18. maí, 1906.

Jóhanna fór með móður sinni, Ingibjörgu Jónatansdóttur til Minneota í Minnesota árið 1881. Þaðan lá svo leið hennar til N. Dakota árið 1884. Jóhannes fór vestur til Nýja Íslands með móður sinni og systkinum árið 1876. Þar bjuggu þau á Melstað, landnámsjörð suður af Gimli. Jóhannes og bræður hans kenndu sig við staðinn og voru Melsted.  Þau fluttu til N. Dakota árið 1881 og námu land í Garðarbyggð. Jóhannes nam sjálfur land  í byggðinni og þar bjó hann og Jóhanna til ársins 1910 en þá flutti hann í Vatnabyggð í Saskatchewan. Hún flutti þangað árið 1912 með tvö yngstu börn þeirra, Valgerði og Elmar. Þau bjuggu suðaustur af Wynyard en þangað flutti Jóhanna seinna. Fór svo vestur að Kyrrahafi, var um hríð í Bresku Kólumbíu en endað svo suður í Kaliforníu.