Narfi Halldórsson

ID: 2000
Fæðingarár : 1841
Fæðingarstaður : Árnessýsla
Dánarár : 1911

Narfi Halldórsson fæddist í Árnessýslu árið 1841. Dáinn 31. mars, 1911 í Vatnabyggð í Saskatchewan.

Maki: Ástríður Árnadóttir f. 1824 í Borgarfjarðarsýslu. Dáin í Saskatchewan 6. ágúst, 1902.

Börn: Guðbrandur f. 1868.

Fluttu vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1877 og voru þar einhvern tíma. Þaðan lá leiðin til N. Dakota þar sem Sigþrúður Guðbrandsdóttir bjó með sínum manni, Ólafi Guðmundssyni. Sigþrúður var dóttir Ástríðar af fyrra hjónabandi. Þaðan fluttu þau aftur til Winnipeg, dvöldu þar stutt því vorið 1886 fluttu þau í Þingvallabyggð í Saskatchewan. Fluttu þaðan árið 1899 í Vatnabyggð í Saskatchewan og námu land í Foam Lake byggð.