ID: 9065
Fæðingarár : 1849
Fæðingarstaður : S. Þingeyjarsýsla
Dánarár : 1924
Sigríður Jónsdóttir fæddist í S. Þingeyjarsýslu árið 1849. Dáin 9. júní, 1924 í Seattle.
Maki: Þorsteinn Þorsteinsson f. 26. október, 1853 í Eyjafjarðarsýslu, d. 26. janúar, 1926. Thorsteinn Thorsteinsson vestra.
Börn: 1. Jón (John) f. 1878, d. 16. desember, 1895 2. Kristján f. 9. maí, 1883 3. Valdimar Jakob f. 13. júní, 1885 4. Guðbjörg Elín 5. Kristinn 6. Aðalsteinn. Önnur fjögur börn þeirra dóu í æsku.
Þorsteinn flutti vestur til Ontario í Kanada árið 1874 en flutti þaðan vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1876. Þaðan lá leið nýgiftra hjóna í Garðarbyggð í N. Dakota árið 1880. Þar bjuggu þau til ársins 1914 en þá seldu þau landið syni sínum, Valdimar og fluttu vestur til Seattle í Washington.
