Vigdís E Þorkelsdóttir

ID: 9066
Fæðingarár : 1842
Fæðingarstaður : N. Þingeyjarsýsla
Dánarár : 1924

Vigdís Emilía Þorkelsdóttir fæddist árið 1842 í N. Þingeyjarsýslu. Dáin árið 1924 í Selkirk.

Maki: Jón Sæmundsson f. í S. Þingeyjarsýslu árið 1830, d. 1918 í Selkirk í Manitoba.

Börn: 1. Þuríður f. 1871 2. Sigurlaug f. í Marklandi, Nova Scotia árið 1877 3. Sæmundur 4. Ágúst

Vigdís fór vestur til Ontario í Kanada árið 1874 en Jón fór vestur árið 1875. Saman fara þau svo austur til Marklands í Nova Scotia. Tóku land í nýlendunni og nefndu Brúarland. Fluttu þaðan vestur á sléttu og settust að á landi sínu í Argylebyggð 1885. Bjuggu þar lengi en fluttu þaðan til Selkirk þar sem þau dóu bæði.