Sigurbjörg Davíðsdóttir

ID: 9088
Fæðingarár : 1864
Fæðingarstaður : S. Þingeyjarsýsla

Sigurbjörg Davíðsdóttir fæddist í S. Þingeyjarsýslu 18. ágúst, 1864.

Maki: 11. nóvember, 1887 Jón Sigfússon f. 1861 í Eyjafjarðarsýslu, d. í mars, 1926. John Sigfusson Bergmann vestra.

Börn: 1. Ingibjörg Anna f. 20. mars, 1889, d. 20. desember, 1928 2. Gestur f. 1. október, 1891, d. 3. september, 1893 3. Þórunn f. 19. nóvember, 1893 4. Kristín Elísabet f. 26. september, 1898 5. Valgerður Soffía f. 16. apríl, 1896.

Sigurbjörg flutti vestur til Ontario í Kanada með foreldrum sínum, Davíð Davíðssyni og Önnu Jónsdóttur árið 1873. Þau bjuggu í Muskoka til ársins 1886, fluttu þá vestur til Garðar í N. Dakota. Jón flutti vestur til N. Dakota árið 1882 með foreldrum sínum og systkinum.