Gísli Jónsson

ID: 9091
Fæðingarár : 1839
Fæðingarstaður : S. Þingeyjarsýsla
Dánarár : 1892

Gísli Jónsson fæddist í S. Þingeyjarsýslu árið 1839. Dalman vestra. Dáinn í Alberta 1892.

Maki: 1873 Karólína Jónsdóttir fæddist í S. Þingeyjarsýslu árið 1845, d. 1921 í Winnipeg.

Börn: 1. Jón 2. Páll 3. Konráð 4. Valdemar. Þau misstu þrjár dætur og einn son.

Gísli og Karólína fóru vestur til Kanada árið 1873 og þaðan áfram til Milwaukee í Wisconsin. Þar bjuggu þau fáein ár en settust svo að í Shawanobyggð upp úr 1875. Voru þar til ársins 1880 en þá fluttu þau í Garðarbyggð í N. Dakota þar sem þau námu land. Enn fluttu þau og nú árið 1888 þegar þau fluttu í Markervillebyggðina í Alberta. Voru þar til ársins 1892 en undirbjuggu þá flutning til Vernon í Bresku Kolumbíu. Á leiðinni þangað lést Gísli í Calgary en Karólína komst á leiðarenda. Þar var hún í fjögur ár en flutti 1896 til Winnipeg í Manitoba.