ID: 9133
Fæðingarár : 1853
Fæðingarstaður : S. Þingeyjarsýsla
Dánarár : 1941
Bæring Hallgrímsson fæddist í S. Þingeyjarsýslu 8. apríl, 1853.
Maki: 1883 Sigurborg Kristófersdóttir f. í S. Þingeyjarsýslu árið 1856, d. 2. apríl, 1923.
Börn: 1. Emil Sigurður 2. Pétur Edwin 3. Carrie Aðalbjörg 4. Sigrún Lilja.
Bæring fór vestur til Ontario í Kanada árið 1874. Hann settist þar að í Muskoka og vann hvaða vinnu sem bauðst. Hann fór vestur til Winnipeg árið 1881, sama ár og Sigurborg kom þangað að heiman. Þau bjuggu í Winnipeg til ársins 1888 en fluttu þá til Glenboro. Þar vann hann við smíðar í tvö ár en fóru þaðan í Argylebyggð og bjuggu þar eftir það.
