Þorkell Ólafsson

ID: 9134
Fæðingarár : 1848
Fæðingarstaður : S. Þingeyjarsýsla
Dánarár : 1931

Þorkell Ólafsson: Fæddur í Vík í Flateyjardal í S. Þingeyjarsýslu árið 1848. Dáinn 1931 í Alberta. Olson í Vesturheimi.

Maki: Helga Jóhannesdóttir f. á Strönd í Mývatnssveit í S. Þingeyjarsýslu árið 1856. Dáin 1938 í Vancouver.

Börn: 1. Ólína Hólmfríður f.1879 2. Vilhjálmur f.1886  3. Harriett f. 1891.

Þorkell og Helga fluttu vestur árið 1877 og fóru fyrst til Muskoka í Ontario. Voru þar nokkur ár m.a. í Parry Sound. Fluttu vestur til Winnipeg og bjuggu þar en tóku land í Argylebyggð. Fluttu á það 1884. Heilsu Þorkels hrakaði og fluttu þau þá frá Argyle 1904 vestur til Newton Station í Bresku Kolumbíu. Þar stunduðu þau landbúnað til 1914 en seldu þá. Fluttu til sonar síns nálægt Innisfail í Alberta og þar dó Þorkell. Helga flutti þá til dóttur sinnar, Ólínu sem bjó í Vancouver.