Elísabet Þorbjörg Geirhjartardóttir fæddist 10. júlí, 1874 í S. Þingeyjarsýslu. Dáin 12. desember, 1922 í N. Dakota.
Maki: 1894 Stefán Stefánsson fæddist í Húnavatnssýslu 21. júní, 1870. Dáinn í Upham í N. Dakota 29. janúar, 1952.
Börn: 1. Einar f. 25. febrúar, 1897 2. Magnús Trausti f. 2. desember, 1898 3. Gunnar Jóhann f. 22. júlí, 1899, d. 6. maí, 1919 4. Guðrún f. 1900, d. ungbarn 5. Oddur Skafti f. 26. október, 1901, d. 1939 6. Joseph Loftur f. 4. september, 1903 7. Höskuldur Guðjón f. 10. október, 1906 8. Margrét Stefanía f. 27. október, 1907, d. 3. mars, 1982 9. Hildigunnur Hólmfríður f. 3. desember, 1909 10. Guðfinna Bergþóra f. 6. nóvember, 1913.
Elísabet fór vestur 1881 með foreldrum sínum, Geirhirti Kristjánssyni og Guðfinnu Jónsdóttur og systkinum. Þau settust að í Garðarbyggð. Stefán flutti vestur til Winnipeg árið 1888 og fór þaðan í Garðarbyggð í N. Dakota. Elísabet og Stefán fluttu í Mouse River byggð árið 1896.
