Sveinn Kristjánsson fæddist 15. september, 1836 í S. Þingeyjarsýslu. Dáinn 7.apríl, 1918 í Saskatchewan.
Maki: 1) 31. ágúst, 1876 Hólmfríður Hansdóttir f. 4. júní, 1824, d. 20. janúar, 1874. 2) 5. ágúst, 1876 Veroníka Ragnheiður Þorkelsdóttir f. 29. desember, 1849, d. 4. apríl, 1912.
Börn: með Hólmfríði 1. Jónína Guðný f. 22. apríl, 1868, d. 2. apríl, 1922 2. Helgi Ásmundur f. 20. nóvember, 1870, d. 7. desember, 1944. Með Veróníku 1. Solveig f. 20. janúar, 1877 2. Rögnvaldur f. 16. júlí, 1879 3. Óttar f. 7. desember, 1880, d. 23. september, 1963 4. Jóhann Svanberg f. 17. janúar, 1885, d. 1958 5. Kristján f. 17. febrúar, 1886, d. sama ár. 6. Þorkell (Kelly) f. 17. mars, 1887 7. Kristjana Rakel f. 18. maí, 1888 8. Hólmfríður (Fríða) f. 18. mars, 1890 9. Jón Halldór f. 9. mars, 1893 10. Vernharður f. 11. mars, 1894, d. 13. maí, 1930 11. Ástríður Björg f. 1894, d. 1964.
Sveinn og Veroníka fluttu vestur um haf árið 1883 til Winnipeg í Manitoba og settust að í Nýja Íslandi. Fluttu vestur í Vatnabyggð í Saskatchewan árið 1905 og námu land austur af Wynyard. Fluttu seinna í Wynyard þorpið.
