Þuríður Jónsdóttir

ID: 9219
Fæðingarár : 1865
Fæðingarstaður : S. Þingeyjarsýsla
Dánarár : 1921

Þuríður Hólmfríður Jónsdóttir fæddist 10. maí, 1865 í S. Þingeyjarsýslu. Dáin í Manitoba 19. ágúst, 1921.

Maki: Jón Klemensson fæddist 19. september, 1866 í S. Þingeyjarsýslu. Clemenson vestra.

Börn: 1. Aðalbjörn f. 1893 2. Klemens f. 1896 (Clemens Clemenson vestra) 3. Valdimar f. 1903 4. Ásgeir f. 3. mars, 1907 5. Björn

Jón fór vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1905 með son sinn Klemens. Þuríður hafði farið vestur þangað árið áður með þá Aðalbjörn og Valdimar, hún var systir Helgu, konu Stefáns Jónssonar landnámsmanns í Argylebyggð. . Þau bjuggu fyrstu sex árin í Argylebyggð en síðan á ýmsum stöðum í fylkinu til ársins 1915. Þá settist fjölskyldan að í Silver Bay sem á árum áður hét Dog Long Bay.