Jón Klemensson

ID: 9222
Fæðingarár : 1866
Fæðingarstaður : S. Þingeyjarsýsla

Jón Klemensson fæddist 19. september, 1866 í S. Þingeyjarsýslu. Clemenson vestra.

Maki: Þuríður Hólmfríður Jónsdóttir f. 10. maí, 1865 í S. Þingeyjarsýslu, d. 19. ágúst, 1921. Hún var systir Helgu, konu Stefáns Jónssonar landnámsmanns í Argylebyggð.

Börn: 1. Aðalbjörn f. 1893 2. Klemens f. 1896 (Clemens Clemenson vestra) 3. Valdimar f. 1903 4. Ásgeir f. 3. mars, 1907 5. Björn

Jón fór vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1905 með son sinn Klemens. Þuríður hafði farið vestur þangað árið áður með þá Aðalbjörn og Valdimar. Þau bjuggu fyrstu sex árin í Argylebyggð en síðan á ýmsum stöðum í fylkinu til ársins 1915. Þá settist fjölskyldan að í Silver Bay sem á árum áður hét Dog Long Bay.