ID: 20625
Fædd(ur) vestra
Fæðingarár : 1895
Dánarár : 1965
Þorsteinn Jens Pálsson fæddist í Mikley 7. nóvember, 1895. Dáinn 29. september, 1965 í British Columbia.
Maki: 8. apríl, 1934 Sigurveig Ingibjörg Pálsson f. 8. október, 1898.
Barnlaus.
Þorsteinn var sonur Páls Sveingbjörns Jakobssonar og Sigríðar Guðrúnar Jensdóttur er vestur fluttu árið 1887 og settust að í Manitoba. Sigurveig var dóttir Gests Pálssonar, bróður Þorsteins og Önnu Hermaniu Sigurgeirsson í Mikley í Manitoba. Þorsteinn fór ungur að veiða fisk í Winnipegvatni en vann einnig við trésmíði. Árið 1946 flutti hann með fjölskyldu sína vestur að Kyrrahafi þar sem þau settust að í Steveston í grennd við Vancouver. Þar fékk Þorsteinn vinnu í frystideild British Columbia Fish Packers Ltd.
