Elín B Gunnlaugsdóttir

ID: 9262
Fæðingarár : 1839
Dánarár : 1906

Elínbjörg Björg Gunnlaugsdóttir fæddist í S. Þingeyjarsýslu 19. nóvember, 1839. Dáin 5. júní, 1906 í Ontario.

Maki: 13. júlí, 1876 Gísli Einarsson f. í Eyjafjarðarsýslu 1. ágúst, 1853. Dáinn í Cardwellbyggð í Ontario 13. október, 1925.

Börn: 1. María f. 28. september, 1883, d. 5. febrúar, 1960.

Gísli og Elínbjörg fluttu vestur til Ontario í Kanada árið 1878 og settust að í Cardwellbyggð. Kallaði Gísli bæ sinn þar Hlíð.