ID: 20633
Fædd(ur) vestra
Fæðingarár : 1901
Steingrímur Halldór Jónsson fæddist í Manitoba 20. júní, 1901. Tók föðurnafnið Sigurgeirsson vestra.
Maki: Sesselja Kristbjörg Björnsdóttir f. á Gimli 15. júní, 1905.
Börn: 1. Doreen Sigurlín f. 10. janúar, 1935 2. Dawne Lillian f. 10. jan. 1935, tvíburi 3. Caroline Ólöf Daphne f. 27. desember, 1943.
Foreldrar Steingríms voru Jón G Sigurgeirsson og Sigurlín Halldórsdóttir í Mikley. Hún var dóttir Björns Indriðasonar og Ólafar Hallgrímsdóttur í Ingólfsvík í Mikley. Steingrímur var fiskimaður og vélstjóri á Winnipegvatni.
