Oddur T Oddsson

ID: 9271
Fæðingarár : 1877
Fæðingarstaður : S. Þingeyjarsýsla
Dánarár : 1933

Oddur T Oddsson Mynd VÍÆ II

Oddur Tryggvi Oddsson fæddist 26. desember, 1877 í S. Þingeyjarsýslu.  Dáinn í Manitoba árið 1933. Tryggvi Sigurdson vestra.

Maki: 30. júní, 1924 Guðný Pálína Jónsdóttir f. í Mountain, N. Dakota 7. september, 1888. Pauline Sigurdson vestra.

Börn: 1. Petrína Louise f. 27. ágúst, 1925 2. Páll (Paul) Aðalgeir f. 18. september, 1927.

Oddur flutti vestur árið 1883 með móður sinni Sigríði Gunnlaugsdóttur og systkinum, Oddur missti föður sinn, Odd Sigurðsson á Íslandi. Sigríður nam land í Garðarbyggð en flutti í Mordenbyggð í Manitoba skömmu eftir aldamót. Þar bjó Tryggvi eftir það. Foreldrar Guðnýjar, Jón Þorláksson og Petrína Guðnadóttir bjuggu nærri Mountain í N. Dakota en fluttu norður í Manitoba um aldamótin.