
Guðbjörg Jónsdóttir

Davíð Valdimarsson Mynd ATtSaP of Langruth District
Davíð Valdimarsson fæddist 1860 í Engidal í S. Þingeyjarsýslu. Dáinn í Manitoba 13. nóvember, 1919.
Maki: 1886 Guðbjörgu Jónsdóttur fædd 1855 á Litlu-Laugum í sömu sýslu.
Börn: 1. Jón f. 1888 2. Kristlaug 3. Elín 4. Valdimar
Þau fluttu vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1890. Þau fóru fyrst í Lögbergsnýlenduna í Saskatchewan og bjuggu þar í þrjú ár. Fluttu þá til Argyle í Manitoba þar sem þau reyndu fyrir sér önnur tvö ár. Í nýlenduna á Big Point komu þau árið 1895. Þau komu þangað með fáeinum, öðrum íslenskum fjölskyldum. Hópurinn var með vagna þar sem konur og börn sátu. Karlmenn voru ríðandi og ráku á undan sér fjölmargar kýr. Guðbjörg hafði þá alið tvö börn í Vestur-heimi. Auk Jóns komu með þeim Kristlaug og Elín. Fjórða barnið, sonurinn Valdimar, fæddist seinna í nýlendunni. Frá upphafi lét Davíð mikið að sér kveða í nýlendunni. Var einn af stofnendum lestrarfélagsins og féhirðir þess. Hann var ennfremur einn stofnenda Herðubreiðarsafnaðar sem hann styrkti með ríflegum fjárgjöfum. Þegar synir þeirra uxu úr grasi urðu þeir báðir bændur og stunduðu akuryrkju af miklum myndarskap.
