Magnús F Ólafsson

ID: 2027
Fæðingarár : 1852
Fæðingarstaður : Húnavatnssýsla
Dánarár : 1928

Magnús F Ólafsson, Helga Jónsdóttir með Petrínu litlu. Mynd WtW

Magnús Ólafsson fæddist í Húnavatnssýslu árið 1852. Dáinn í Lundar árið 1928. Freeman vestra.

Maki: Helga Jónsdóttir f. 1853 í Borgarfjarðarsýslu.

Börn: 1. Ásmundur f. 1878 2. Gunnar f. 1885 3. Petrína f. 1889 4. Ólafur f. 1895 5. Jóhanna f. 1893

Þau fluttu vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1886 og ári seinna á land í Lundarbyggð. Þaðan fluttu þau norður í Narrows við Manitobavatn og bjuggu þar sem kallað var ,,Freeman´s Point“. Eftir 11 ára dvöl þar við vatnið neyddust þau til að yfirgefa Narrows vegna mikilla flóða. Allir hagar og tún fóru undir vatn. Þau sneru aftur í Lundarbyggð og settust að á landi vestur af Lundar þar sem þau bjuggu síðan. Þaðan lá leið þeirra í Ósland í Bresku Kólumbíu þar sem þau bjuggu einhver ár en sneru til baka til Lundar snemma á 3. áratug 20. aldar.