ID: 20668
Fæðingarár : 1912
Dánarár : 1986

Skúli Jóhannsson Mynd VÍÆ V
Skúli Jóhannsson fæddist 9. mars, 1912 í Sveinatungu, Norðurárdal í Mýrasýslu. Dáinn í Winnipeg 24. nóvember, 1986.
Maki: 10. nóvember, 1939 Erika Pétursdóttir f. í Reykjavík 10. október, 1916.
Börn: 1. Ingibjörg Karen f. 22. ágúst, 1943.
Skúli gekk menntaveginn, nam verslunarfræði í Danmörku og þýskalandi. Þegar heim kom vann hann verslunarstörf og heildsölu. Árið 1955 flutti hann til Winnipeg þar sem hann vann í glerverksmiðju og hætti svo að vinna 1. júlí, 1977. Hann aðlagaðist fljótt samfélagi Íslendinga í borginni og tók mikinn þátt í félagslífi þeirra. Hann var forseti Þjóðræknisfélags Íslendinga í Vesturheimi frá 1977 til ársins 1980.
