Oscar T Johnson

ID: 20680
Fædd(ur) vestra
Fæðingarár : 1894

Oscar T Johnson og Eliza Margarida Mynd VÍÆ V

Oscar Tryggvi Johnson fæddist í Akra, N. Dakota 17. nóvember, 1894.

Maki: 5. október, 1931 Eliza Margarida Isfeld f. í Curytypa, Brasilíu 8. júlí, 1902.

Börn: Elín Sigríður Kristina Margarida f. 26. febrúar, 1939.

Oscar varð bóndi og nam land við Climax í Saskatchewan árið 1912 og bjó þar í rúm 12 ár. Þó tók við herþjónusta árin 1918-1919, svo byggingarvinna við trjákvoðu verksmiðju við Winnipeg 1925-26. Þá vann hann við kornkaup fyrir State Elevator Co. í Mozart, í Saskatchewan 1926-1937.  Árið 1937 tók hann við búi tengdaforeldra sinna nærri Wynyard og sinnti því til ársins 1947. Þá flutti hann aftur til Mozart þar sem hann gerðist póstmeistari í tíu ár. Árið 1957 flutti hann til Saskatoon þar sem hann vann næstu tíu árin hjá Ready Mix Concrete & Gravel Company sá á sama tíma um afgreiðslu á hóteli þar í bæ. Hann flutti til Kaliforníu með fjölskylduna ári 1966 og settist að í Stockton þar sem hann vann í skipasmíðastöð í eitt ár. Þá hætti hann að vinna, sneri aftur til Saskatchewan og bjó eftir það í Saskatoon. Oscar var sonur Guðmundar Jónssonar og Sigríðar Jónsdóttur í Mountain, N. Dakota. Eliza var dóttir Magnúsar Guðmundssonar Isfeld og Elínar Ísfeld sem fluttu til Brasilíu árið 1873 og bjuggu þar í tíu ár. Settust að í Wynyard árið 1904.