
Hús Steingríms í Vatnabyggð árið 1905.

Árið 1916 var nýtt íbúðarhús risið og betri hlöður og gripahús. Myndir Almanak 1917
Steingrímur Jónsson fæddist í Eyjafjarðarsýslu árið 1872. Dáinn í Winnipegosis árið 1953.
Maki: 19. mars, 1901 Sesselja Jónsdóttir f. í Rangárvallasýslu árið 1874, d. í Wynyard í desember, 1944.
Börn: 1. Guðný 2. Guðrún.
Steingrímur fór vestur til Winnipeg í Manitoba með foreldrum sínum árið 1889. Þau settust að í Þingvallabyggð og bjuggu þar í sex ár. Þá keypti Steingrímur land nálægt Winnipeg í Manitoba. Vorið 1904 skrapp Steingrímur vestur og nam land í Vatnabyggð í Saskatchewan og fluttu þau á það árið 1905. Sesselja fór 12 ára gömul árið 1886 vestur til Winnipeg í Manitoba með Helga Árnasyni og konu hans, móðursystur sinni Guðrúnu Jónsdóttur.
