Ágúst S Sigurðsson

ID: 20702
Fædd(ur) vestra
Fæðingarár : 1915
Fæðingarstaður : Manitoba

Ágúst S Sigurðsson Mynd VÍÆ V

Ágúst Sigurður Sigurðsson fæddist í Manitoba 23. nóvember, 1915. Gus Sigurdson vestra.

Maki: 1) 1959 Stephanie Jymchuck Mattrick f. 13. janúar, 1915, d. 1968 2) 9. júlí, 1974 Janet Mary Rumley

Börn: Ágúst átti engin börn.

Ágúst var sonur Ágústs Jakobs Tranberg og Sigurbjargar Guðlaugsdóttur í Vestmannaeyjum.  Hann lauk barna- og unglingaskólanámi í Lundar og fór þá að vinna. Hann kom víða við, stundaði búskap, byggingarvinnu og rak eigin bókaverslun.