
Páll Andrésson Mynd VÍÆ I
Páll Andrésson fæddist 9. maí, 1881 í S. Þingeyjarsýslu. Dáinn í Manitoba 25. maí, 1959. Paul A. Anderson vestra.
Maki: 1) 17. desember, 1917 Margrét Sigríður Sigurgeirsdóttir f. 13. október, 1884, d. 31. mars, 1919 2) 2. apríl, 1922 Guðrún Jóhanna Kristjánsdóttir f. 11. maí, 1891.
Börn: Páll og Margrét eignuðust ekki börn en með Guðrúnu 1. Kristján Gunnar 2. Margrét Hólmfríður.
Páll fór vestur með foreldrum sínum og bræðrum árið 1887 til Winnipeg í Manitoba. Fjölskyldan settist að í Argylebyggð og þar ólst Páll upp. Páll rak verslun í Glenboro í félagi við Snæbjörn, bróður sinn og nefndu það Anderson Bros. Guðrún flutti vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1913 og bjó þar í sex ár en fór aftur heim 1919. Fór svo vestur aftur seinna.
