ID: 9405
Fæðingarár : 1849
Fæðingarstaður : S. Þingeyjarsýsla
Dánarár : 1882

Séra Páll Þorláksson Mynd SÍND
Páll Þorláksson fæddist í S. Þingeyjarsýslu 13. nóvember, 1849. Dáinn á Mountain í N.D. 12. mars, 1882.
Ókvæntur og barnlaus.
Páll fór vestur um haf árið 1872 til Milwaukee í Wisconsin. Nam guðfræði í St. Louis í Missouri og vígður prestur hjá Norwegian Synod árið 1875. Stofnaði fyrsta íslenska söfnuðinn í N. Ameríku í Shawano County haustið 1875. Var viðloðandi Nýja Ísland frá 1876 til 1879 en settist þá að í Mountain í N. Dakota.
