Þorlákur Jónsson

ID: 9406
Fæðingarár : 1824
Fæðingarstaður : S. Múlasýsla
Dánarár : 1916

Þorlákur Gunnar Jónsson og Henrietta Lovísa Níelsdóttir Mynd PIP

Þorlákur Gunnar Jónsson fæddist 16. ágúst, 1824 við Berufjörð í S. Múlasýslu. Dáinn í Wisconsin 21. janúar, 1916. Thorlakson vestra.

Maki: Lovísa Níelsdóttir f. 1822 á Húsavík í S. Þingeyjarsýslu. Dáin 26. júlí, 1901 í Selkirk í Manitoba.

Börn: 1. Haraldur f. 1847 2. Páll f. 1851, d. 1. mars, 1882 3. Jón f. 1853 4. Jakobína f. 1854 5. Rannveig f. 1856 6. Níels f. 1858 7. Björn f. 1860 8. Valgerður f. 1863.

Fluttu vestur til Milwaukee í Wisconsin árið 1873 með fimm yngstu börn sín. Haraldur og Páll fóru vestur árið á undan. Þau bjuggu í borginni í tvö ár en haustil 1875 fluttu þau í Ljósavatnssýslu í Shawano í Wisconsin. Bjuggu þar til ársins 1879 en það ár fluttu þau vestur til N. Dakota og námu land á Mountain. Skömmu fyrir aldamótin fluttu þau til Detroit þar sem þau voru til ársins 1901 en þá fluttu þau til Selkirk í Manitoba. Þorlákur nam land í Vatnabyggð í Saskatchewan árið 1904 og settist þar að árið 1905. Bjó þar í átta ár en fór svo þaðan til Haraldar sonar síns í Mackenzie sýslu vestast í N. Dakota. Var þar þegar Haraldur lést 1915 en flutti þá til Rannveigar dóttur sinnar í Wisconsin.

 

Íslensk arfleifð :