
Jón Valdimar Þorláksson Mynd VÍÆ III
Jón Valdimar Þorláksson fæddist í S. Þingeyjarsýslu 3. nóvember, 1851. Dáinn í Winnipeg 26. október, 1924.
Maki: 1) 1881 Petrína Guðnadóttir f. 11. nóvember, 1865, d. 9. janúar, 1912 2) Anna Pedersen danskrar ættar.
Börn: Með Petrínu 1. Páll d. í æsku 2. Lovísa (Louisa) Guðfinna f. 10. október, 1884 3. Valdimar Steingrímur f. 24. nóvember, 1886 4. Guðný Pálína f. 7. september, 1888 5. Þorlákur Gunnar f. 12. september, 1890 6. Þórunn Laufey f. 19. febrúar, 1892 7. Grace Mabel f. 19. desember, 1894 8. Ester Aurora f. 13. nóvember, 1896 9. Inga Marín f. 5. maí, 1899. Með Önnu 1. Daníel f. 27. maí, 1915.
Jón flutti vestur til Milwaukee í Wisconsin árið 1873 með foreldrum sínum, Þorláki G Jónssyni og Lovísu Níelsdóttur og systkinum. Hann fylgdi þeim í Ljósavatnsnýlenduna í Shawano sýslu 1875 og vestur til N. Dakota um 1880. Petrína flutti vestur til Nýja Íslands árið 1876 með móður sinni, Guðfinnu Jóhannesdóttur og stjúpföður sínum, Sigurgeiri Björnssyni. Þau bjuggu þar til ársins 1880, fóru þá suður til N. Dakota. Jón og Petrína bjuggu suðvestur af Mountain.
