
Aðalbjörg Benediktsdóttir Mynd VÍÆ IV
Aðalbjörg Benediktsdóttir fæddist 2. september, 1878 í S. Þingeyjarsýslu. Dáin í Manitoba 18. febrúar, 1954.
Maki: 5. október, 1905 Guðbrandur Jónsson fæddist í Dalasýslu 1. júní, 1874. Dáinn í Winnipeg í Manitoba 29. júní, 1944. Brandur J. Brandson vestra.
Börn: 1. Jón Theodor f. 11. júlí, 1906, d. 1910 2. Nanna Margrét f. 13. ágúst, 1908 3. Theodora f. 16. ágúst, 1912 4. Thomas Leonard f. 28. júní, 1915.
Aðalbjörg flutti vestur árið 1883 með foreldrum sínum, Benedikt Jónssyni og Nönnu Arngrímsdóttur. Guðbrandur fór vestur um haf með foreldrum sínum og systkinum árið 1878. Þau fóru fyrst í Lyonsýslu í Minnesota en settust svo að í Garðarbyggð í N. Dakota árið 1880. Nam læknisfræði í Winnipeg, Dublin, Vínarborg og London. Settist að í Winnipeg árið 1905 og bjó þar alla tíð.
