ID: 9432
Fæðingarár : 1871
Fæðingarstaður : Eyjafjarðarsýsla
Þorkell Hallgrímsson fæddist árið 1871 í Eyjafjarðarsýslu.
Maki: 1) Kona af svissneskum ættum, d. 1905 2) Kona af pólskum ættum.
Börn: Þorkell átti sjö börn með fyrri eiginkonu og fjórtán með þeirri pólsku. Frekari upplýsingar vantar.
Þorkell fór árið 1873 til Brasilíu með foreldrum sínum, Hallgrími Þorkelssyni og Önnu Pálsdóttur. Þau námu land á hásléttu í Paraná fylki og þar ólst Þorkell upp hjá móður sinni og systkinum en föður sinn missti hann árið 1880. Fyrri eiginkona hans var dóttir eiganda sögunarmyllu og vann Þorkell við rekstur hennar með tengdaföður sínum og mágum. Efnaðist Þorkell bærilega og lifði vel og lengi.
