Margrét Jónsdóttir

ID: 9440
Fæðingarár : 1867
Fæðingarstaður : S. Þingeyjarsýsla
Dánarár : 1930

Margrét Jónsdóttir fæddist á Hofstöðum í S.Þingeyjarsýslu 14. maí, 1867. Dáin í Manitoba 5. júlí, 1930.

Maki: Gunnlaugur Davíðsson f. að Hólkoti í Reykjadal í S. Þingeyjarsýslu 9. júní, 1867. Dáinn 11. apríl, 1931 í Manitoba.

Börn: 1. Guðbjörg Marselína 2. Agnes Þóra 3. Jón 4. Leifur Alexander.

Þau fóru vestur árið 1890 og fóru vestur í Þingvallabyggðina í Saskatchewan.  Voru þar í rúmt ár en settust að í Argylebyggð 1892. Keyptu lönd norður af Baldur.