Edward Laurier Sveinsson

ID: 20722
Fædd(ur) vestra
Fæðingarár : 1904

Edward Laurier Sveinsson fæddist í Selkirk, Manitoba 30. október, 1904. Stephanson á fullorðinsárum.

Maki: 10. ágúst, 1937 Victoria Guðrún Austfjörð f. 24. maí, 1912. Foreldrar Halldór Jónsson Austfjörð og Margrét Einarsdóttir.

Börn: 1.Edward Garfield f. 1938 2. Shirley Gayle f. 1941 3. Donald Garth f. 1945 4. Owen Ross f. 1947.

Hann var sonur Helga Ásmundar Sveinssonar og konu hans, Kristínar Jónsdóttur. Edward var alinn upp hjá Valgerði og Jóhanni G Stephanson og tók því upp föðurnafnið Stephanson. Hann ólst upp í Vatnabyggðum í Saskatchewan. Hann lauk grunnskólanámi í Big Quill skólanum, stundaði menntaskólanám í Wynyard og nam rafmagnsverkfræði 1925-1928 í Saskatchewan University í Saskatoon. Hann nam einnig í Sir William College í Montreal. Hann réðst til Thordarson Electric Manufactoring Co. fyrirtæki Hjartar Þórðarsonar. Hann vann síðan víða í Kanada fram að eftirlaunaaldri en stofnaði þá, árið 1956 sitt eigið fyrirtæki Stegg Electric Co.