Ólafur Helgi Thomasson

ID: 20724
Fædd(ur) vestra
Fæðingarár : 1907
Fæðingarstaður : Manitoba

Ólafur Helgi Thomasson fæddist í Morden, Manitoba, 11. mars, 1907.

Maki: Jemina Haystead f. 6. maí, 1926, norskur uppruni.

Börn: 1. Jeanette May f. 1951 2. Pauline Gwen f. 1956 3. Thomas Paul f. 1956.

Ólafur Helgi var sonur Páls Tómassonar og Guðnýar Ólafsdóttur í Mozart, Saskatchewan. Hann stundaði búskap til ársins 1957, gerðist þá póstmeistari í Mozart og vann við það til ársins 1972, þá fór hann á eftitlaun.