Jón Finnbogason

ID: 9534
Fæðingarár : 1850
Fæðingarstaður : S. Þingeyjarsýsla

Jón Finnbogason fæddist 14. júní, 1850 í S. Þingeyjarsýslu. John Finnson vestra.

Maki: 1) 1877 Rebekka Marteinsdóttir f. í S. Þingeyjarsýslu árið 1855, d. 1878. Séra Jón Bjarnason gaf þau saman. 2) 1881 Jakobína Sigurðardóttir f. 1856 í Eyjafjarðarsýslu. Séra Halldór Briem gaf þau saman.

Börn: Með Jakobínu 1. James Arthur.

Jón flutti vestur til Ontario árið 1874 og var í Kinmount fyrsta árið. Flutti vestur til Winnipeg 1875 og bjó þar í ár. Fór þá til Nýja Íslands og bjó á Gimli. Sneri aftur til Winnipeg árið 1877. Hann flutti til N. Dakota árið 1881, nam þar land og bjó á því til ársins 1890 en flutti þá til baka til Winnipeg og bjá þar upp frá því. Rebekka flutti vestur til Winnipeg árið 1876 og Jakobína sama ár.