Björn Þorláksson

ID: 9540
Fæðingarár : 1884
Fæðingarstaður : S. Þingeyjarsýsla

Björn nam land í Silver Bay og Benedikt, bróðir hans í Moose Horn Bay. Sigurgeir Pétursson, faðir Kristjönu bjó í Siglunesi.

Björn Þorláksson Mynd VÍÆ II

Björn Þorláksson fæddist í S. Þingeyjarsýslu 20. október, 1884.

Maki: 23. október, 1908 Kristjana Sigurgeirsdóttir f. 21. mars, 1881, d. 18. desember, 1958.

Börn: 1. Arnþór f. 13. júlí, 1911, d. 13. janúar, 1945 2. Kristján f. 10. desember, 1912 3. Hólmfríður María f. 19. febrúar, 1918.

Björn flutti vestur til Winnipeg árið 1893 með foreldrum sínum, Þorláki Jónassyni og Kristrúnu Pétursdóttur. Hann bjó hjá þeim í Argylebyggð til ársins 1908, þá flutti hann norður í Silver Bay og nam þar land.  Kristjana flutti vestur með föður sínum, Sigurgeir Péturssyni og Maríu Jónsdóttur konu hans sama ár, með sama skipi.