Magnús Jónsson

ID: 9557
Fæðingarár : 1842
Fæðingarstaður : Skagafjarðarsýsla
Dánarár : 1925

Magnús Jónsson, Oggný Jóhannesdóttir og tveir synir þeirra Mynd FLNÍ

Magnús Jónsson fæddist 13. ágúst, 1842 í Skagafjarðarsýslu. Dáinn árið 1925 í N. Dakota.

Maki: Oddný Jóhannesdóttir f. 31. júlí, 1845, d. 5. ágúst, 1937.

Börn: 1. Jóhannes f. 11. ágúst, 1873 2. Friðrik f. 1876 3. Geirfinnur f. 4. febrúar, 1884 4. Jón f. 31. mars, 1890.

Þau fluttu vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1876 og fóru til Nýja Íslands sama ár. Faðir Oddnýjar, Jóhannes Oddsson var þeim samferða vestur. Þau voru á Gimli fyrsta árið en námu land þar í grennd árið 1877 og nefndu Fjón. Vorið 1880 fluttu þau til Winnipeg og þaðan ári síðar í Thingvallabyggð í N. Dakota.