Benedikt Sigtryggsson

ID: 9681
Fæðingarár : 1882
Fæðingarstaður : S. Þingeyjarsýsla
Dánarár : 1969

Benedikt Sigtryggsson Mynd Laxdælir

Benedikt Kristjánsson fæddist í Kasthvammi í Laxárdal í S. Þingeyjarsýslu 28. febrúar 1881. Dáinn á Akureyri 11. nóvember, 1969.

Ókvæntur og barnlaus.

Hann flutti vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1902. Sneri aftur til Íslands 1906, mest í þeim tilgangi að hvetja foreldra sína til að flytja vestur. Hann var þeim og systkinum sínum samferða vestur árið 1907 og fylgdi þeim vestur að Kyrrahafi. Þar bjó hann með fjölskyldunni í Blaine og seinna í Seattle. Foreldrar hans fóru suður til San Francisco og ljóst að Benedikt fór þangað með þeim því bréf hans heim til Íslands eru send þaðan. Hann heimsótti Ísland árið 1949 en fór vestur aftur. Flutti svo alkominn til Íslands skömmu fyrir andlátið.

 

Íslensk arfleifð :