Sigríður Dínusdóttir

ID: 9742
Fæðingarár : 1865
Fæðingarstaður : S. Þingeyjarsýsla
Dánarár : 1933

Mynd: Einkasafn

Sigríður Dínusdóttir fæddist í S. Þingeyjarsýslu 12. júlí, 1865. Dáin í N. Dakota 12. febrúar, 1933. Clara Pleasance vestra.

Maki: 30. júlí, 1883 William Pleasance f. í Englandi 12. ágúst, 1855, d. 8. mars, 1943.

Börn: 1. Fredrick 2. Frank 3. James f. 1893, d. 29. apríl, 1909 4. Christine f. 1897, d. 1925.

Sigríður flutti vestur árið 1879 með foreldrum sínum, Dínusi Jónssyni og Kristjönu Andrésdóttur og systkinum. Þau voru í Winnipeg fyrstu árin og þar fékk Sigríður vinnu. Hún bjó í Winnipeg næstu árin en foreldrar hennar settust að í Akra í N. Dakota. Þangað flutti Sigríður árið 1882 en þar bjó þá William, hann hafði sest þar að á eigin landi árið 1880.